Hlustaðu á fólkið þitt

Mannauðsmælingar sem skila árangri. Moodup eflir stjórnendur, styrkir starfsumhverfið og bætir frammistöðu starfsfólks.

Airport Associates
Bónus
Dagar
Hertz
Hrafnista
Hörðuvallaskóli
Landspítali
Olís
Pósturinn
Ríkiskaup
Samskip
Síminn

Svona virkar Moodup

Reglulegar mælingar gefa stjórnendum heildstæða mynd af líðan starfsfólks og gera þeim kleift að auka starfsánægju á vinnustaðnum

1

Þú skráir starfsfólkið

Þú skráir starfsfólk í mælingar í stjórnborðinu, hleður upp Excel-skjali eða tengir Moodup við launa- eða mannauðskerfi vinnustaðarins

2

Starfsfólk svarar spurningum

Starfsfólk getur svarað púlsmælingum, sérsniðnum könnunum og stjórnendamötum. Þú stýrir tíðni og tegundum mælinga

3

Stjórnendur fá niðurstöður

Stjórnendur bregðast við í gegnum fullkomið mælaborð með niðurstöðum í rauntíma. Þar sést strax hvar stærstu tækifæri til úrbóta liggja

Umsagnir stjórnenda

Púlsmælingar Moodup gefa okkur verðmæta innsýn í líðan starfsfólks í hverjum mánuði. Samanburður við aðra vinnustaði sýnir okkur hvar við getum gert ennþá betur. Moodup er lykilhluti af stefnu okkar um að vera eftirsóknarverður vinnustaður.

Gígja Einars
Finnur Oddsson
Forstjóri

Moodup hefur verið okkur dýrmætt tæki til að móta vinnustað framtíðarinnar. Örkannanir gefa skýra mynd af stöðunni á hverjum tíma og veita okkur tækifæri til að bregðast við. Með sérsniðnum könnunum höfum við auk þess skoðað aðra þætti eins og t.d. árangurinn af styttingu vinnuvikunnar.

Sara Lind Guðbergsdóttir
Sviðsstjóri stjórnunar og umbóta

Við notum Moodup með frábærum árangri. Viðmótið er til fyrirmyndar og hjálpar okkur að viðhalda háu svarhlutfalli. Þá er einfalt að lesa úr niðurstöðum mælinga sem tryggir eftirfylgni og umbætur. Loks er þjónustan fyrsta flokks. Ég mæli hiklaust með Moodup fyrir allar stærðir og tegundir fyrirtækja.

Brynjar Már Brynjólfsson
Mannauðsstjóri

Með púlsmælingum Moodup gefst okkur tækifæri til að hlusta á raddir allra starfsmanna og nálgast þá á einfaldan hátt. Það skiptir okkur miklu máli að fá endurgjöf frá okkar starfsfólki til að gera sífellt betur og byggja upp góða fyrirtækjamenningu til framtíðar.

Þórey Jónsdóttir
Mannauðsstjóri

Stjórnborð sem styrkir vinnustaðinn

Mælaborð Moodup inniheldur fjölbreytta virkni til að auðvelda stjórnendum að skilja og bæta starfsánægju út frá nýjustu upplýsingum

Sundurliðun

Hægt er að skipta vinnustaðnum upp á mörgum þrepum, til dæmis í svið og deildir innan þeirra, og skoða innbyrðis samanburð þeirra á milli.

Drifkraftar

Starfsánægja er sundurliðuð í tíu drifkrafta samkvæmt leiðandi kenningum í vinnustaðasálfræði til að auðvelt sé að greina orsakir og áhrifaþætti

Spurningar

Fjölbreyttar spurningar úr spurningabanka Moodup gefa heildstæða mynd af stærstu áhrifaþáttum starfsánægju. Vinnustaðir geta líka sent út eigin spurningar

Yfirlit

Heildstætt yfirlit yfir niðurstöður mælinga á einum stað. Þar má sjá samanburð við aðra íslenska vinnustaði, NPS-einkunn, þróun yfir tíma auk bæði styrkleika og veikleika

Endurgjöf

Hverri púlsmælingu fylgir opin textaspurning þar sem starfsfólk gefur endurgjöf sem stjórnendur geta síðan brugðist við inni í stjórnborðinu

Himinhátt svarhlutfall

72% starfsmanna svara mælingum í Moodup. Við náum svo háu svarhlutfalli með samspili nokkurra þátta:

Fljótlegt
Við sendum fáar spurningar sem einfalt er að svara. Meðalsvartími í öllum könnunum er 1 mínúta og 19 sekúndur
Skemmtilegt
Myndræn framsetning og gagnvirkni gerir svörunina líkari tölvuleik en skriflegu prófi
Fjölbreytt
Nýjar spurningar í hvert skipti úr fjölbreyttum spurningabanka Moodup koma í veg fyrir kannanaþreytu
Aðgengilegt
Starfsfólk fær könnunina í gegnum SMS eða tölvupóst og getur svarað í símanum á sínu tungumáli

Tenging við þitt kerfi

Þú getur tengt Moodup við mannauðs- eða launakerfið þitt til að starfsmanna­listinn sé alltaf réttur

Moodup talar við öll kerfi sem bjóða upp á þennan möguleika, til dæmis H3, Kjarna, Orra, Dynamics/Business Central, Tímon og 50skills

Advania H3
Kjarni
Orri
Microsoft Dynamics Business Central
Tímon
50skills

Starfsánægja skiptir máli

Ávinningur aukinnar starfsánægju er ótvíræður. Ánægt starfsfólk afkastar meiru, mætir betur og er ólíklegra til að hætta í vinnunni

afköst
+23%
fjarvistir
-45%
starfsmannavelta
-31%

Munur á efsta og neðsta fjórðungi vinnustaða. Samantekt á 456 rannsóknum á 2,7 milljónum starfsmanna í 96 löndum (Gallup, 2020)

Prófaðu Moodup án skuldbindingar Stofnaðu aðgang í dag