Persónuvernd
Við gætum fyllstu varúðar við meðferð persónuupplýsinga og tryggjum að öll vinnsla sé í samræmi við gildandi persónuverndarlög og almennu evrópsku persónuverndarreglugerðina.
Hér getur þú fræðst um meðferð okkar á persónuupplýsingum þínum og um réttindi þín þeim tengd. Finnir þú ekki svör við spurningum þínum geturðu haft samband við okkur: personuvernd@moodup.is
Hvaðan fær Moodup persónuupplýsingar?
Vinnustaðir afhenda Moodup upplýsingar um starfsfólk sitt til vinnslu þegar vinnslusamningur hefur verið undirritaður og tekið gildi. Í vinnslusamningi undirgengst Moodup skilmála til að tryggja að vinnsla persónuupplýsinga sé í samræmi við gildandi persónuverndarlög og almennu evrópsku persónuverndarreglugerðina.
Af hverju vinnur Moodup með persónuupplýsingar?
Moodup mælir starfsánægju og áhrifaþætti hennar fyrir vinnustaði. Stjórnendur fá aðgang að mælaborði þar sem þeir geta greint niðurstöðurnar með margvíslegum hætti, til dæmis út frá sviði, deild, kyni og starfsaldri. Til að sinna þessu hlutverki vinnur Moodup með persónuupplýsingar einstaklinga sem starfa á viðkomandi vinnustað.
Hvers konar persónuupplýsingar er unnið með hjá Moodup?
Moodup vinnur með persónuupplýsingar eins og:
- Auðkenni einstaklinga, t.d. nafn, kennitölu og kyn
- Tengiliðaupplýsingar einstaklinga, t.d. símanúmer og tölvupóstfang
- Upplýsingar sem tengjast könnunum, t.d. svör við könnunum og hvenær einstaklingur svaraði þeim
Vinnsla persónuupplýsinga felur m.a. í sér að Moodup safnar, skráir, geymir, eyðir, afhendir og samkeyrir framangreindar upplýsingar.
Getur vinnuveitandi minn séð hvernig ég svaraði könnun hjá Moodup?
Nei, Moodup tryggir starfsfólki nafnleynd þegar það svarar könnunum. Vinnustaðir geta aldrei skoðað svör einstakra starfsmanna. Moodup birtir stjórnendum niðurstöður með ópersónugreinanlegum hætti, til dæmis með kröfum um lágmarksfjölda sem þarf að hafa svarað til að þær birtist.
Í vinnslusamningi er jafnframt tekið fram að Moodup afhendir vinnustað aldrei svör einstakra starfsmanna við könnunum. Svörum starfsmanna er síðan eytt þegar vinnslusamningi lýkur.
Hver hefur aðgang að persónuupplýsingunum?
Starfsfólk Moodup vinnur einungis með persónuupplýsingar þegar nauðsyn krefur vegna þeirra verkefna sem þau hafa umboð til þess að sinna. Þess er gætt að vinnsla persónuupplýsinga sé ávallt í samræmi við ákvæði laga og reglugerða um persónuvernd. Allir starfsmenn Moodup eru bundnir trúnaði um allt sem þeir fá vitneskju um í starfi sínu og helst sú trúnaðarskylda þegar starfsmaður hættir störfum.
Stjórnendur vinnustaða hafa einungis aðgang að þeim persónuupplýsingum sem vinnustaðurinn sjálfur hefur afhent Moodup til vinnslu. Þannig geta stjórnendur vinnustaðar séð t.d. nafn, netfang, og símanúmer starfsmanna, en ekki svör einstakra starfsmanna við könnunum. Aðgangi stjórnenda að upplýsingum er stýrt af viðkomandi vinnustað með aðgangsstýringarverkfærum sem tryggja að stjórnandi hafi einungis aðgang að þeim starfsmannaupplýsingum sem honum er heimilt.
Hvernig er öryggi persónulegra upplýsinga tryggt?
Við gerum margvíslegar ráðstafanir til að tryggja öryggi persónuupplýsinga og annara gagna sem við vinnum með. Þú getur kynnt þér þær ráðstafanir á eftirfarandi upplýsingasíðu hjá okkur: gagnaöryggi
Hverjum afhendir Moodup persónulegar upplýsingar?
Moodup afhendir aldrei persónuupplýsingar til þriðja aðila. Einungis ábyrgðaraðili, þ.e. stjórnendur á þeim vinnustað sem hefur afhent Moodup persónuupplýsingar til vinnslu, getur nálgast þær.
Hvar geymir Moodup persónuupplýsingar?
Moodup geymir og vinnur með allar persónuupplýsingar innan EES-svæðisins til að tryggja að meðferð þeirra sé í samræmi við almennu evrópsku persónuverndarreglugerðina.
Hversu lengi geymir Moodup persónulegar upplýsingar?
Moodup geymir upplýsingar eins lengi og þörf krefur svo unnt sé að sinna hlutverki sínu og í samræmi við lög og reglugerðir. Persónuupplýsingum er eytt þegar þeirra er ekki lengur þörf. Til dæmis er öllum persónuupplýsingum sem tengjast starfsfólki vinnustaðar eytt þegar þjónustu- og vinnslusamningur við viðkomandi vinnustað fellur úr gildi.
Hver er ábyrgðaraðili?
Þeir vinnustaðir sem mæla starfsánægju í gegnum Moodup eru ábyrgðaraðilar þeirra persónuupplýsinga sem Moodup vinnur með.
Hver er réttur á aðgangi að upplýsingum?
Samkvæmt lögum um persónuvernd eiga allir rétt á að fá vita hvaða persónuupplýsingar Moodup vinnur með og jafnframt að fá aðgang að persónulegum upplýsingum sem Moodup geymir, innan þeirra lögbundnu marka sem slíkum gagnaafhendingum eru settar.